Heimur í brotum: GKS 1812 4to og alfræði miðalda
Viðey
20.–21. október 2016
Ráðstefnan er haldin í tilefni af því að öld er liðin frá því að íslenskir alfræðitextar frá miðöldum voru gefnir út undir heitinu Alfræði íslenzk I–III. Bindin þrjú komu út á árunum 1908–1918 á vegum Samfund til udgivelse for gammel nordisk litteratur. Það var danski fræðimaðurinn Kristian Kålund sem bar hitann og þungann af útgáfunni en við útgáfu annars bindis (1914–16) — þar sem einkum eru prentuð rímtöl — naut hann fulltingis Svíans Natanaëls Beckman. Eitt mikilvægasta handritið sem þeir Kålund og Beckman notuðu við útgáfuna er GKS 1812 4to og á ráðstefnunni verður sjónum beint sérstaklega að því. Handritið var um langt skeið varðveitt í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn en var afhent Íslendingum árið 1984 í samræmi við samkomulag sem gert var um lausn handritamálsins.
GKS 1812 4to er eitt af merkari alfræðihandritum íslenskum sem varðveist hafa frá miðöldum. Færð hafa verið rök fyrir því að það hafi einhvern tímann verið í Viðeyjarklaustri. Handritið er samtals 36 blöð og eru þau leifar af a.m.k. þremur skinnbókum. Elsti hluti handritsins er frá því um 1190–1200. Í þessum hluta er m.a. að finna íslenskt-latneskt orðasafn, ritgerðir um tímatalsfræði, kafla úr Íslendingabók, og latnesk-íslenskar glósur. Næst elsti hlutinn eru fjögur blöð úr handriti frá öðrum fjórðungi 13. aldar. Þessi hluti hefur m.a. að geyma landakort, teikningar heimsfræðilegs efnis, calendarium og aðra tímatalsfræði. Yngstu hlutarnir eru leifar af handriti frá 14. öld. Þessir hlutar innihalda einkum stjörnufræði og tímatalsfræði, m.a. teikningar af níu merkjum dýrahringsins og skiptingu heimspekinnar.
Ráðstefnan er haldin í Viðey dagana 20.–21. október 2016. Til hennar er boðið 13 fyrirlesurum af ólíkum sviðum miðaldafræða — handritafræði, listfræði, latínu, heimspeki, stærðfræði, stjörnufræði og landafræði — til þess að fjalla um handritið og efni þess frá ólíkum sjónarhornum.
Skráning á ráðstefnuna
Dagskrá
Thursday, 20 October 2016
9.30–10.15 The Edition
- Ragnheiður Mósesdóttir (University of Copenhagen) – Icelandic encyclopaedic literature in the hands of Kristian Kålund & Natanael Beckmann
10.15–10.30 Coffee
10.30–11.45 The Manuscript
- Svanhildur Óskarsdóttir (Institute of Árni Magnússon) – Fragments United: The Codicology of GKS 1812 4to
- Haraldur Bernharðsson (University of Iceland) – GKS 1812 4to: Scribes and scribal practice
12.00–12.45 Latin Glosses
- Åslaug Ommundsen (University of Bergen) – Latin memory aids in GKS 1812 4to
13.00–14.00 Lunch
14.15–15.30 Computus and Astronomy
- Þorsteinn Vilhjálmsson (University of Iceland) – Indigenous Observations or Imported Texts: The Origins of Medieval Icelandic Manuscripts on Science
- Christian Etheridge (University of Southern Denmark) – From Carolingian star maps to Arabic astronomical instruments: Assessing the different types of astronomy represented by the hands of GKS 1812 I 4to and GKS 1812 II 4to
15.30–16.00 Coffee
16.00–17.15 Medieval Mathematics
- Abdelmalek Bouzari (École normale supérieure, Algiers) – Le Calculus dans al-Khwârizmî (d. 850): une example de circulation.
- Kristín Bjarnadóttir (University of Iceland): Algorismus – Hindu-Arabic arithmetic in GKS1812 4to
17.30–18.15 Icelandic Astronomers in the Middle Ages
- Marteinn H. Sigurðsson (Íslenzk fornrit) – The Homecoming of Sæmundr and Stjörnu-Oddi’s Dream: Star-gaziong Lore in Medieval Iceland
18.30 Reception and conference dinner
Friday, 21 October 2016
9.30–10.45 Mapping the World
- Alfred Hiatt (Queen Mary University of London) – Time and the map
- Dale Kedwards (Centre for Medieval Literature, SDU) – An Icelandic world map and the Ark treatises of Hugh of Saint Victor
10.45–12.00 Fragments of Medieval Learning
- Gunnar Harðarson (University of Iceland) – Medieval Encyclopedias and Icelandic Manuscripts
- Guðrún Nordal (Institute of Árni Magnússon) – The long shadow of Ari Þorgilsson: The learned context of the earliest sections of GKS 1812
12.00–13.00 Lunch
Conference closing